• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Námskeiðahald

Hestamennska haustið 2017

Skrifað þann September 08 2017
  • Print
  • Netfang
Mynd hestamennska
Þann 16.okt nk. munum við hefja námskeið í Hestamennsku á nýjan leik. Námskeiðin eru sjálfstætt framhald af fyrri Hestamennsku námskeiðum sem haldin hafa verið undanfarin ár. Skipt verður í tvo hópa, meira vanir og minna vanir. Námskeiðin eru opin fyrir öll börn og unglinga sem eru vel reiðfær. 

Til að byrja með verður kennt 1x í viku án hests, en verður svo aukið í 2x viku þegar verkleg kennsla hefst með hesti. Kennt verður á mánudögum, til að byrja með, og svo munu miðvikudagar bætast við. Kennt verður í Samskipahöllinni. Tímasetning verður auglýst þegar nær dregur (fer eftir fjölda).




Í bóklegum tímum munum við m.a. fara í heimsókn á hrossaræktarbú og fá til okkar fyrirlesara. 

Í verklegum tímum munum við m.a. fjalla um gangtegundir, ásetu, stjórnun, fimiæfingar, hringteymingar og hindrunarstökk. 




Nemendur þurfa að mæta með sinn hest frá og með 20.nóvember.

Við mælum með því að foreldrar sameinist um hesthús svo utanumhald og hirðingar verði léttari. Það er líka mun skemmtilegra fyrir krakkana að vera nokkur saman í hesthúsi.




Drög að dagskrá:

16. okt. – án hests

23. okt. – án hests

30. okt. – án hests

6. nóv. – án hests

20. og 22. nóv. – verkleg kennsla

27. og 29. nóv. – verkleg kennsla

4. og 6. des. – verkleg kennsla

11. og 13. des. – verkleg kennsla

18. og 20. des. – verkleg kennsla




Samtals eru þetta 14 kennslustundir. Verð er kr. 32.000 kr.

Skráning fer fram á www.sportfengur.com en hefst ekki fyrr en 25.sept. vegna þess að Sportfengur liggur niðri þangað til vegna uppfærslu.
Hægt verður að nýta sér frístundastyrk til þess að greiða niður námskeiðsgjaldið.
Allar nánari upplýsingar má finna hjá Sigrúnu s:896-1818 eða hjá Þórdísi s:868-7432.

Allar námskeiðsfréttir

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Námskeiðahald