Fréttir
Starfsmaður á skrifstofu óskast.
Laust er til umsóknar starf á skrifstofu Spretts.
Ertu sveigjanlegur, lipur í mannlegum samskiptum, með frábæra skipulagshæfileika og reynslu af bókahaldi ? Þá gæti þetta verið starfið fyrir þig.Við leitum að einstaklingi sem hefur góða tölvu og bókhaldskunnáttu en helstu verkefni eru:• Utanumhald um reikninga og reikningagerð.• Halda utan um og greina innheimtar tekjur félagsins og rekstrarfélagsins, en um er að ræða tekjur af fræðslustarfsemi, mótahaldi, auglýsingum, veitingasölu ofl.• Uppgjör á vörusölu í veitingasal.• Skráning ásamt utanumhaldi um námskeið á vegum félagsins.• Aðstoð við innkaup rekstrarvara, fylgjast með pósthólfi, sendiferðir oþh.• Önnur tilfallandi verkefni sem framkvæmdastjóri felur starfsmanni.• Reynsla í DK bókhaldskerfi æskileg.Starfið er laust frá og með næstu mánaðamótum en um er ræða hálft stöðugildi. Vinnutími er í samráði við framkvæmdastjóra Spretts.Umsækjendur sendi umsóknir með ferilskrá á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. fyrir 14 Mars næstkomandi.Félagsmenn eru sérstaklega hvattir til þess að sækja um.
Framkvæmdarstjóri