Síðasti skráningardagur á morgun í Mar Wear fimmganginn í Blue Lagoon mótaröðinni í Spretti!
Mótaröðin er opin öllum og hvetjum við sem flesta að skrá sig! Mjög sniðugt að mæta og æfa sig á fimmta gírnum í Sprettshöllinni.
Annað mót Blue Lagoon mótaraðarinnar verður haldið í Samskipahöllinni í Kópavogi sunnudaginn 22. apríl n.k. Er það haldið í boði Mar Wear. Keppt verður í fimmgangi og verða eftirfarandi flokkar í boði:
Barnaflokkur (10-13 ára)
Unglingaflokkur (14-17 ára)
Ungmennaflokkur (18-21 árs)
Riðið verður hefðbundið fimmgangsprógramm F2 í barna-, unglinga- og ungmennaflokki.
Frábært mót fyrir yngri kynslóðina þar sem vegleg verðlaun eru í boði. Hvetjum við alla að mæta með góða skapið.
Skráning fer fram í gegnum Sportfeng og hefst föstudaginn 13. apríl og lýkur á miðnætti fimmtudaginn 19. apríl.
Skráningagjöld eftirfarandi:
2500 kr. fyrir barna-, unglinga- og ungmennaflokk
Skráning er opin til miðnættis fimmtudaginn 19. apríl! Mikilvægt era ð senda kvittun fyrir greiðslu á netfangið
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. !!
Einnig má fylgjast nánar með á eventinum á facebook:
https://www.facebook.com/events/440048263113214/