• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Fréttir

Fyrstu vetrarleikar Spretts 2021 færðir inn í Samskipahöllina

Skrifað þann Febrúar 13 2021
  • Print
  • Netfang

frumherji

Ákveðið hefur verið að færa fyrstu vetrarleika Spretts 2021 inn í Samskipahöllina vegna slæmra vallaraðstæðna og veðurspár.

Keppt verður á hefðbundin hátt vetrarleika, uppá vinstri hönd, hægt tölt og svo fegurðartölt.

Lifandi niðurstöður verða á viðburði vetrarleikanna. 

https://www.facebook.com/events/453135649390460

Áhorfendabann er á vetrarleikunum og grímuskylda verður í rennunni.

Hvetjum alla sem ætla að taka þátt til að skrá sig í gegnum eftirfarandi tengil, skráningafrestur er til kl 11:00 sunnudaginn 14. feb

 https://docs.google.com/spreadsheets/d/1OpK-zWAP3328yp-OHhgqtbSGZZ1f0aLswXJEnh-T9vI/edit?fbclid=IwAR0ymnFUY-eRheM5xQAoN_71tej8emVhdkIyV1LTG10w5cTxgrDc-prZ8OA#gid=301852034

Þátttakendur eru beðnir um að millifæra inn á Sprett á reiking 0318-26-010942, Kt 590712-0940 og senda kvittun á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Mótið hefst kl 13:00.

Boðið verður upp á keppni í eftirtöldum flokkum í þessari röð:
Pollar (9 ára og yngri) – teymdir
Pollar (9 ára og yngri) – ríða sjálfir
Börn minna keppnisvön (10-13 ára)
Börn (10-13 ára)
Unglingar - minna keppnisvanir (14-17 ára)
Unglingar - meira keppnisvanir (14-17 ára)
Ungmenni- minna keppnisvön (18-21 árs)
Ungmenni - meira keppnisvön (18-21 árs)
Konur II - minna keppnisvanar
Karlar II - minna keppnisvanir
Heldri menn og konur (60 ára +)
Konur I - meira keppnisvanar
Karlar I - meira keppnisvanir
Opinn flokkur (karlar og konur)


Mótið er ætlað skuldlausum félagsmönnum í hestamannafélaginu Spretti. Hver keppandi má aðeins skrá í einn flokk og eru félagar hvattir til að sýna metnað við skráningu í flokka.
Nefndin áskilur sér rétt til að sameina flokka ef ekki er næg þátttaka í einhverjum þeirra.


Vetrarleikarnir verða þriggja móta röð þar sem verðlaunað er fyrir hvert mót, auk þess sem keppendur safna stigum úr öllum þremur mótunum og verða stigahæstu knaparnir í hverjum flokki verðlaunaðir á síðasta mótinu.

1.sæti gefur 10 stig
2.sæti gefur 8 stig
3.sæti gefur 6 stig
4.sæti gefur 4 stig
5.sæti gefur 2 stig
1 stig fæst fyrir allla þá sem taka þátt.

Vonumst til að sjá sem flesta.

Leita á vefnum

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Fréttir