Í þéttbýli.
- Hestamenn víkja til hægri á reiðleiðum.
- Hestar sem eru teymdir skulu ávallt vera hægramegin og ekki fleiri en tveir ( þrír til reiðar ).
- Reiðhjálmar eru sjálfsögð öryggistæki.
- Endurskinsmerki í skammdegi veita hestum og mönnum aukið öryggi.
- Lausir hundar eru ekki leyfilegir á reiðleiðum og í hesthúsahverfum.
- Áfengi og útreiðar fara ekki saman.
- Sýnum tillitsemi, ríðum ekki hratt á móti eða aftanundir aðra reiðmenn.
- Fari margir hestamenn saman í hóp skal ríða í einfaldri röð ef umferð er á móti.
- Ríðum á reiðvegum og slóðum þar sem því verður viðkomið.
- Teymum hesta, rekstrar eru bannaðir í þéttbýli.
Landssamband hestamannafélaga
Ferða- og samgöngunefnd.